Rétt eins og Mercedes og Racing Point þá frumsýndi Red Bull í dag keppnisbíll sinn fyrir komandi keppnistíð. Er hann í allt öðru útliti en um árabil.
Mun meira er af bæði rauðum lit og dökkbláum á yfirbyggingunni en eftir á að koma í ljós hvort hann verði í þessari útfærslu þegar mótin hefjast því gefið var til kynna við frumsýninguna í dag, að litastíllinn ætti eftir að breytast.
Ökumenn verða Max Verstappen og Pierre Gasly. Sá fyrrnefndi hefur unnið fimm mót á þremur árum með Red Bull. Gasly er aftur á móti að hefja sitt fyrsta tímabil, var áður með dótturliðinu Toro Rosso.
Tímamót verða í ár með tilkomu Honda sem vélarframleiðanda en vélar úr smiðju Honda knúðu bíla Toro Rosso í fyrra.
Red Bull vann fjögur mót í fyrra og hafði ekki hrósað sigri í jafnmörgum mótum á neinni vertíð frá 2014 er hybrid-vélar voru teknar í notkun í formúlu-1.