Formúluliðin hefja í dag fyrri lotu þróunaraksturs af tveimur. Báðar fara fram í Barcelona.
Þar munu liðin fá fyrstu reynslu sína af nýjum keppnisbílum 2020-vertíðarinnar.
Sú breyting hefur orðið á frá í fyrra, að æfingadögum liðanna hefur verið fækkað úr átta í sex.
Williamsliðið væntir þess að því takist betur upp en í fyrra en þá tókst liðinu ekki að fullklára smíði 2019-bílanna áður en reynsluaksturinn hófst.
Fyrri lotan hefst miðvikudaginn 19. febrúar og lýkur 21. febrúar. Sú seinni stendur svo yfir frá 26. til 28. febrúar.