Þýski ökuþórinn Mick Schumacher hefur misst sætið sitt hjá bandaríska Formúlu 1 liðinu Haas. Liðið hefur ráðið landa hans Nico Hulkenberg í hans stað.
Schumacher var í tvö tímabil hjá Haas en náði sér ekki almennilega á strik, eftir að hafa orðið Formúlu 2 meistari þar á undan.
Mick Schumacher er sonur Michael Schumacher, sem varð á sínum tíma sjö sinnum heimsmeistari og er af mörgum talinn einn besti ökumaður allra tíma.