Spánarmeistarar Real Madrid munu ekki kaupa neina leikmenn í félagaskiptaglugganum í janúar segir Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri liðsins.
Liðið hefur átt erfitt uppdráttar á mælikvarða þessa risaliðs á þessu tímabili og er í 4. sæti í spænsku 1. deildinni. Liðið er 19 stigum frá toppliði Barcelona og hefur verið orðað við nokkra leikmenn í mánuðinum. Þar á meðal Mauro Icardi, fyrirliða Inter Mílanó, og markvörð Athletic Bilbao, Kepa Arrizabalaga.
Zidane segir hins vegar að það verði engin ný andlit sem munu sjást á Bernabeu.
„Við munum ekki kaupa [nýja leikmenn] að vetri til. Um það eru ég og félagið sammála,“ er haft eftir Zidane á Sky Sports.