Usain Bolt, einn sigursælasti frjálsíþróttamaður sögunnar, lagði hlaupaskónna á hilluna eftir heimsmeistaramótið í London í fyrra og æfir nú með knattspyrnuliði Dortmund í Þýskalandi.
Bolt hefur lengi látið sig dreyma um atvinnumennsku í knattspyrnu og daðraði lengi vel við sitt uppáhalds félag, Manchester United, í fjölmiðlum.
Þessi 31 árs kappi, sem er áttfaldur ólympíumeistari, á þó nokkuð í land með að láta drauminn verða að veruleika ef marka má orð knattspyrnustjóra þýska liðsins, Peter Stöger.
„Þetta snýst um aðferð, verklag og hreyfingu. Ég held að hann [Bolt] sé hæfileikaríkur en ef hann vill spila knattspyrnu á hæsta stigi, þá á hann langt í land,“ sagði Stöger sem þó hafði mjög gaman af nærveru Jamaíkumannsins.
„Það sem skiptir máli er að hann skemmti sér vel og það var gaman fyrir okkur að hafa hann, það er frábært að fá að hitta íþróttamann eins og hann og vinna með honum.
Þó Bolt fái ekki samning við Dortmund fær hann draum uppfylltan í sumar þegar hann spilar fótboltaleik á Old Trafford heimavelli Manchester United en hann mun taka þátt í góðgerðarleik á vegum UNICEF. Bolt verður í heimsliðinu sem spilar á móti úrvalsliði Englands. Í liðunum verða frægar kempur en þar má nefna menn eins og tónlistarmanninn Robbie Williams og gömlu fótboltahetjurnar Teddy Sheringham, Luís Figo, Alan Shearer, Paolo Di Canio og Franco Baresi.