Nýr þjálfari hjá Dortmund

Lucien Favre.
Lucien Favre. AFP

Svisslendingurinn Lucien Favre hefur verið ráðinn þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund.

Samningur Favre við Dortmund gildir til ársins 2020 en hann hefur stýrt franska liðinu Nice tvö síðustu árin og þar áður var hann þjálfari þýsku liðanna Herthu Berlin og Borussia Mönchengladbach.

Patrick Vieira, fyrrverandi fyrirliði Arsenal, þykir líklegastur til að taka við þjálfarastarfinu hjá Nice sem endaði í 3. sæti í frönsku 1. deildinni á nýafstöðnu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert