Höskuldur Gunnlaugsson reyndist hetja sinna manna í Halmstad í sænsku B-deildinni í dag er hann skoraði sigurmark leiksins gegn Eskilstuna í toppbaráttunni. Leiknum lauk 2:1.
Gestirnir í Eskilstuna komust yfir snemma leiks með marki Zuran Tsiskaridze áður en Jonathan Svedberg minnkaði muninn fyrir hálfleik.
Höskuldur skoraði svo eina mark síðari hálfleiksins og jafnframt sigurmarkið á 60. mínútu. Tryggvi Hrafn Haraldsson kom inn á í hálfleik og lék því 45 mínútur fyrir Halmstad.
Með sigrinum hafa liðin sætaskipti og er Halmstad nú í öðru sæti með 27 stig, þremur stigum frá toppliði Falkenberg.