Sanches er að þiðna í Þýskalandi

Renato Sanches.
Renato Sanches. AFP

Knattspyrnumaðurinn Renato Sanches er að þiðna eftir erfiða tíma hjá stórliði Bayern Munchen samkvæmt þjálfara liðsins, Niko Kovac, sem hrósaði miðjumanninum einnig í hástert.

Sanchez fór að láni til Swansea á Englandi á síðasta tímabili og gekk illa að finna sitt besta form en hann var eftirminnilega kosinn besti ungi leikmaður Evrópumótsins í Frakklandi 2016 er hann varð meistari með Portúgal.

Hann virðist þó vera endurnærður undir leiðsögn Kovac, sem tók við Munchen í vor, og skoraði m.a. í 3:1-sigri á PSG í æfingaleik í gær. „Ég er ánægður fyrir hans hönd, hann hefur ekki átt auðvelda tíma hér í Munchen,“ sagði Kovac.

„En ég sá strax á mínum fyrsta degi að hann er frábær leikmaður og ég sé hann aðeins vera að þiðna. Ef hann fær sjálfstraustið sem hann þarf þá veit hann sjálfur hvað hann er fær um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert