Guðlaugur Victor Pálsson fer heldur betur vel af stað með Zürich í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann var valinn maður leiksins í 2:1-sigri á FC Thun í 1. umferðinni um helgina og nú hefur hann verið valinn í lið vikunnar af Blick.
Victor spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar. „Íslendingurinn vel vakandi,“ var meðal þess sem segir í umfjöllun Blick eftir leikinn en Guðlaugi tókst m.a. að bjarga frábærlega á línu eftir gott skallafæri Dennis Hediger í liði Thun og sá til þess að bikarmeistararnir frá því í fyrra hófu tímabilið á þremur stigum.
Næsti leikur Zürich er á móti Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum í Grasshopper.
— Total Football (@totalfl) July 23, 2018