Varnarmaðurinn Thilo Kehrer er genginn til liðs við franska knattspyrnufélagið PSG en þetta staðfesti franska félagið á heimasíðu sinni í hádeginu. Kehrer kemur til félagsins frá Schalke í Þýskalandi og skrifar hann undir fimm ára samning við franska liðið. Kaupverðið er talið vera í kringum 37 milljónir evra.
Þessi 21 árs gamli varnarmaður er einn efnilegasti leikmaður Þýskalands og á hann að baki níu landsleiki fyrir U21 árs lið Þjóðverja. Hann varð Evrópumeistari með U21 árs liðinu síðasta sumar en hann spilað 44 leki fyrir Schalke á árunum 2016 til 2018 þar sem hann skoraði 4 mörk.