Lionel Messi fyrirliði Barcelona fékk í dag afhentan gullskóinn í fimmta sinn fyrir markaskor á síðustu leiktíð.
Messi skoraði 34 mörk í 36 leikjum með Barcelona í deildinni á síðustu leiktíð og varð markahæsti leikmaður deildarinnar í fimmta sinn. Enginn hefur oftar orðið markakóngur í deildinni en Argentínumaðurinn.
Tímabilin sem Messi hefur orðið markahæstur:
2009/10 — 34 mörk
2011/12 — 50 mörk
2012/13 — 46 mörk
2016/17 — 37 mörk
2017/18 — 34 mörk
Messi er þegar byrjaður að gera atlögu að sjötta gullskónum. Hann er markahæstur í deildinni með 14 mörk og enginn hefur skorað fleiri mörk en hann í fimm stærustu deildunum í Evrópu.