Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Vendsyssel sem mætti Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Jón Dagur spilaði hins vegar aðeins 34 mínútur þar sem hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 34. mínútu. Var þetta í fyrsta skipti sem Jóni Degi er vikið af velli með rautt spjald í 75 leikjum á ferlinum.
Liðsfélagar Jóns héldu hreinu út hálfleikinn en fengu svo skell í síðari hálfleik og lauk leiknum með 3:0-sigri Horsens. Vendsyssel er í næstneðsta sæti deildarinnar með 19 stig eftir 22 leiki.