Þorlákur Már Árnason hefur tekið við starfi aðstoðarþjálfara karlalandsliðs Hong Kong í knattspyrnu og gegnir því út þetta ár.
Þorlákur var um áramót ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong og sinnir því báðum verkefnunum fram að áramótum. Sem yfirmaður var Þorlákur í aðalhlutverki í ráðningu nýs landsliðsþjálfara, Mixu Paatelainen frá Finnlandi, sem var m.a. samherji Guðna Bergssonar hjá enska liðinu Bolton á árum áður.
„Þetta kom upp nýlega vegna þess að aðstoðarþjálfari liðsins er að taka „Pro Licence“-þjálfararéttindin í Kína í ár. Mixu óskaði eftir því að fá mig með sér og þegar ég var búinn að fá staðfestingu á að ég mætti gera þetta af fullum krafti frá stjórn sambandsins þá ákvað ég að taka slaginn,“ sagði Þorlákur við mbl.is.
Þorlákur segir að þetta muni ganga upp hjá sér næstu mánuðina en hann vilji í framhaldinu geta einbeitt sér að aðalstarfinu sem yfirmaður knattspyrnumála.
Ítarlegt viðtal við Þorlák um ráðninguna og fyrstu mánuðina á nýjum slóðum í Asíu verður að finna í Morgunblaðinu í fyrramálið.