Stjarnan tryggði sér áframhaldandi þátttöku í Evrópudeildinni í fótbolta með dramatískum hætti fyrr í dag. Brynjar Gauti Guðjónsson skoraði mark í uppbótartíma framlengingar á móti Levadia Tallinn frá Eitlandi og tryggði liðinu áfram og einvígi við Espanyol frá Spáni.
Eins og gefur að skilja fögnuðu Stjörnumenn vel og innilega strax eftir leik og svo í klefanum skömmu síðar. Stjarnan birti tvö myndbönd af fagnaðarlátunum á Twitter-síðu sinni og þau má sjá hér að neðan.
Mark á síðustu mínútu framlengingar = farseðill til Barcelona og leikur gegn Espanyol í næstu umferð.
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) July 18, 2019
💙💙💙 pic.twitter.com/SG96YpqBqp
Klukkan er gleði hér í Tallinn! pic.twitter.com/uPInc6AZF3
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) July 18, 2019