Svava skoraði og lagði upp í stórsigri

Svava Rós Guðmundsdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði eitt mark og lagði upp annað í 5:0-stórsigri Kristianstad á útivelli gegn Kungsbacka í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Kristianstad er í þriðja sæti deildarinnar í Svíþjóð en liðið hefur 14 stig, stigi frá toppliði Göteborg. Svava Rós skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik og var svo tekin af velli strax eftir hlé. Þá spilaði Sif Atladóttir fram að 61. mínútu en Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er sem stendur í láni hjá Þór/KA en er væntanleg aftur til Kristianstad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert