Aron Sigurðarson og samherjar hans hjá Start tryggðu sér í kvöld sæti í efstu deild Noregs í fótbolta, þrátt fyrir 4:3-tap á útivelli gegn Arnóri Smárasyni og félögum í Lillestrøm. Lillestrøm er hins vegar fallið úr deildinni og leikur í B-deild á næsta tímabili.
Það verður í fyrsta skipti frá 1975, eða í 45 ár, sem Lillestrøm leikur ekki í efstu deild í Noregi.
Start, sem leikur undir stjórn Jóhannesar Harðarsonar, vann fyrri leikinn á heimavelli, 2:1, og vinnur því einvígið á útivallarmörkum. Það var hins vegar fátt sem benti til annars en að Lillestrøm væri að fara að halda sæti sínu í efstu deild, þar sem liðið komst í 4:0 í seinni hálfleik.
Alexander Melgalvis kom Lillestrøm í 4:0 á 61. mínútu og þurfti Start að skora þrjú mörk til að eiga möguleika á að fara upp. Martin Ramsland tók þá til sinna ráða og skoraði þrjú mörk á ótrúlegum sex mínútna kafla skömmu fyrir leikslok og tryggði Start sæti í deild þeirra bestu.
Aron Sigurðarson átti gott tímabil hjá Start, en hann skoraði bæði mörk liðsins í fyrri leik liðanna, og 17 mörk alls á leiktíðinni. Aron lék allan leikinn í kvöld, en Arnór Smárason kom inn á sem varamaður hjá Lillestrøm á 85. mínútu.
Þrjú Íslendingalið fóru upp úr B-deildinni á tímabilinu. Aalesund, með þá Hólmbert Aron Friðjónsson, Aron Elís Þrándarson, Davíð Kristján Ólafsson og Daníel Leó Grétarsson innanborðs, vann öruggan sigur í deildinni og Viðar Örn Jónsson og Emil Pálsson hjá Sandefjord urðu í öðru sæti.