Skotmark United mætt til Katar

Mario Mandzukic.
Mario Mandzukic. AFP

Sóknarmaðurinn Mario Mandzukic er mættur til Katar til að undirgangast læknisskoðun hjá félaginu Al-Duhail en Sky Sports á Ítalíu greinir frá þessu.

Króatíski landsliðsmaðurinn er samningsbundinn Juventus á Ítalíu og var lengi talinn á leiðinni til Manchester United en þessi 33 ára gamli framherji var á óskalista enska félagsins síðasta sumar.

Hann hefur ekki spilað keppnisleik fyrir ítölsku meistarana á þessu tímabili og reyndi United að fá hann til Manchester á lokadegi félagsskiptagluggans í sumar. Þá héldu einhverjir að félagið myndi reyna aftur við hann í janúar en Mandzukic er nú mættur til Katar. Gangi læknisskoðunin vel mun hann skrifa undir 18 mánaða samning við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert