Þýska liðið Frankfurt varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 2:2-jafntefli á útivelli gegn Salzburg.
Frankfurt vann fyrri leikinn á heimavelli 4:1 og einvígið samanlagt 6:3. Frankfurt mætir Basel frá Sviss í 16-liða úrslitunum.
Andreas Ulmer skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Salzburg á 10. mínútu en 20 mínútum síðar jafnaði André Silva og var staðan í leikhléi 1:1.
Jérome Onguene kom Salzburg aftur yfir á 71. mínútu en skömmu síðar skoraði Silva sitt annað mark og annað mark Frankfurt og þar við sat.