Joshua Kimmich reyndist hetja Bayern München þegar liðið vann afar mikilvægan sigur gegn Borussia Dortmund í toppslag þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu á Signal Iduna Park í Dortmund í gær.
Með sigrinum eru Þýskalandsmeistararnir nú með sjö stiga forskot á Dortmund þegar sex umferðir eru eftir og var markaskorarinn hæstánægður með sigurmarkið sitt. „Þetta var sennilega fallegasta mark lífs míns og líka gríðarlega mikilvægt,“ sagði Kimmich við fjölmiðla beint eftir leik.
„Okkur var sagt að Bürki [markvörður Dortmund] vilji sitja dálítið framarlega þannig að ég tók sénsinn, það var smá heppni í þessu,“ bætti hann við en markið skoraði hann með glæsilegri vippu. Þökk sé sigrinum er fátt sem getur komið í veg fyrir að Bayern vinni sinn áttunda deildarmeistaratitil í röð.