Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans hjá Darmstadt misstu af mikilvægum stigum í toppbaráttunni í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag er liðið gerði 1:1-jafntefli við Greuter Fürth á heimavelli.
Mabian Schnellhardt skoraði fyrra mark leiksins er hann kom Darmstadt yfir á 56. mínútu. Felix Platte fékk gott færi til að tvöfalda forskotið skömmu síðar en hann skaut í stöng úr víti. Greuter Fürth nýtti sér það því Marvin Stefaniak jafnaði metin á 87. mínútu og þar við sat.
Guðlaugur Victor lék allan leikinn á miðjunni hjá Darmstadt. Liðið er í 5. sæti deildarinnar með 43 stig, þremur stigum frá Hamburger SV sem er í umspilssæti um sæti í efstu deild.