Knattspyrnumaðurinn Blaise Matuidi er á förum frá Juventus og mun ganga til liðs við David Beckham í Inter Miami í Bandaríkjunum.
Sky á Ítalíu segir frá þessu en miðjumaðurinn er 33 ára og hefur verið á mála hjá ítölsku meisturunum síðan 2017. Hann mun undirgangast læknisskoðun hjá bandaríska félaginu í vikunni. Hann kom til Juventus frá franska stórliðinu PSG en hann á að baki 84 landsleiki fyrir Frakkland og varð heimsmeistari í Rússlandi, sumarið 2018.
Knattspyrnustjarnan David Beckham er einn af stofnendum Inter Miami en hann og Matuidi spiluðu saman hjá PSG árið 2013.