Ögmundur Kristinsson og liðsfélagar hans í Olympiacos eru í vænlegri stöðu eftir 2:0-sigur gegn Omonia frá Kýpur í fyrri leik liðanna í 4. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Piraeus í Grikklandi í kvöld.
Mathieu Valbuena kom gríska liðinu yfir á 69. mínútu með marki úr vítaspyrnu og Youssef El Arabo bætti við öðru marki Grikkjanna í uppbótartíma.
Ögmundur var ekki í leikmannahópi Olympiacos í kvöld en hann gekk til liðs við félagið frá Larissa fyrr í sumar.
Liðin mætast í síðari leik sínum hinn 29. september næstkomandi en sigurvegarinn í einvíginu fer í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á meðan tapliðið fer í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.