Kai Havertz og Thiago Silva, leikmenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea, eru báðir í leikmannahópi Chelsea sem mætir Rennes í Meistaradeildinni í kvöld.
Havertz, sem er 21 árs gamall, greindist með kórónuveiruna fyrr í mánuðinum og hefur því verið í einangrun að undanförnu en hann snýr aftur í liðið í kvöld.
Silva, sem er orðinn 36 ára gamall, var hvíldur um helgina þegar Chelsea vann 2:0-sigur gegn Newcastle á útivelli.
Chelsea er í efsta sæti E-riðils með sjö stig, líkt og Valencia, og nægir stig í kvöld til þess að tryggja sig áfram í sextán liða úrslit keppninnar.