Cluj frá Rúmeníu vann í kvöld 2:1-útisigur á Lincoln Red Imps frá Gíbraltar í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
Heimamenn komust yfir á 45. mínútu með marki frá Marco Rosa og var staðan í hálfleik 1:0 fyrir Lincoln.
Cluj gafst hins vegar ekki upp því Gabriel Debeljuh jafnaði á 52. mínútu eftir stoðsendingu frá Rúnari Má Sigurjónssyni. Debuljuh var aftur á ferðinni á 58. mínútu með sigurmarkið.
Seinni leikur einvígisins fer fram næstkomandi miðvikudag. Sigurliðið úr einvíginu mætir annaðhvort Slovan Bratislava frá Slóvakíu eða Young Boys frá Sviss í næstu umferð. Tapliðið fer í Evrópudeildina.