Hrósar íslenska táningnum í hástert

Eggert Aron er nýjasti leikmaður Elfsborg.
Eggert Aron er nýjasti leikmaður Elfsborg. Ljósmynd/Elfsborg

Knattspyrnumaðurinn ungi Eggert Aron Guðmundsson samdi í dag við sænska félagið Elfsborg. Kemur hann til félagsins frá uppeldisfélaginu Stjörnunni.

Stefan Andreasson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Elfsborg, var hæstánægður með að landa Eggerti, sem er aðeins 19 ára gamall.

„Við höfum lengi reynt að fá hann til okkar og það hefur loksins tekist. Okkur finnst mjög gott að hafa náð að laða að okkur einn efnilegasta leikmann Íslands,“ er haft eftir Andreasson á heimasíðu félagsins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert