ÍBV Íslandsmeistari kvenna í handknattleik

Andrea Atladóttir með Íslandsbikarinn. Myndin er tekin af beinni útsendingu …

Andrea Atladóttir með Íslandsbikarinn. Myndin er tekin af beinni útsendingu Sjónvarpsins með góðfúslegu leyfi.
mbl.is

ÍBV varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna í handknattleik þegar liðið lagði Gróttu/KR 19:17 í Eyjum í kvöld og þar með þriðja leik liðanna. Gestirnir höfðu yfir í leikhléi, 11:9 og náði fjögurra marka forustu snemma í síðari hálfleik en eftir að hafa tekið leikhlé tókst Eyjastúlkum að jafna og komast yfir og þær tryggðu sér síðan nokkuð öruggan sigur. Anita Andreassen var markahæst hjá ÍBV með 6 mörk en Alla Gorgorian var markahæst hjá Gróttu/KR með 7 mörk. Þá varði Vigdís Sigurðardóttir 15 skot í marki ÍBV og Fanney Rúnarsdóttir 16 skot í marki Gróttu/KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert