Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum hafnaði í öðru sæti í undankeppni Evrópumeistaramótsins í hópfimleikum sem varð að ljúka í Odiveli í úthverfi Lissabon. Íslenska sveitin fékk samtals 55.100 stig fyrir æfingar sína. Hún verður þar af leiðandi með í úrslitum á laugardaginn en keppnin hefst um hádegið.
Sænska sveitin, sem er ríkjandi Evrópumeistari, fékk samtals 56.750 stig og sendi þar með mjög sterk skilaboð til annarra sveita fyrir úrslitin á laugardaginn. Danir voru með 54.600 stig í þriðja sæti.
Kvennaliðið fór á kostum í dansæfingum sínum og hlaut hæstu einkunn allra liðanna, eða 21.450 stig. Svíar voru næstir með 20.700 stig og Danir skammt þar á eftir. Dansinn var flottur en aðeins vantaði upp á jafnvægi í nokkru skipti. Það er nokkuð sem verður væntanlega bætt úr fyrir úrslitin.
Fyrsta greinin gekk nokkuð vel en það var trampolínstökk. Helst vantaði upp á örfáar betri lendingar hjá hópnum. Alls fékk íslenska liðið 16.800 fyrir dýnustökkið og á örugglega eitthvað inni þar fyrir úrslitin. Svíar áttu magnaða stökksýningu á dýnunni og fengu 18.100 stig.
Dýnustökkin í lokaumferðinni voru stórbrotið. Þar sýndu íslensku konurnar hvers þær eru megnugar enda var einkunnin eftir því 16.850 þótt vissulega hafi mörgum þótt hún vera í lægri kantinum miðað við þau glæsilegu tilþrif sem íslenska liðið sýndi í tilkomumiklum og kraftmiklum stökkum sínum. Það tjáir ekki að deila við dómarann.
Aðalatriðið var hins vegar að komast heilu og höldnu í úrslitin og það tókst svo sannarlega. Það því spennandi laugardagur fram undan hjá fimleikaáhugafólki.