Guðlaug og Sigurður best á árinu

Guðlaug Edda Hannesdóttir.
Guðlaug Edda Hannesdóttir. Ljósmynd/FRÍ

Þríþrautarsamband Íslands hefur valið Guðlaugu Eddu Hannesdóttur og Sigurð Örn Ragnarsson sem þríþrautarfólk ársins 2019.

Hér að neðan má sjá umfjöllun sambandsins um íþróttafólkið. 

Guðlaug Edda Hannesdóttir

Guðlaug Edda (25 ára úr Breiðabliki) er þríþrautarkona ársins 3. árið í röð. Hún hefur verið búsett í Danmörku síðastliðin þrjú ár og æft með danska þríþrautarlandsliðinu. Nýlega flutti hún aftur til Íslands og byrjaði að æfa undir leiðsögn Ian O'brien en hann var valinn þjálfari ársins af bandaríska þríþrautarsambandinu.

Hún keppir í flokki atvinnumanna hjá Alþjóðaþríþrautarsambandinu og er mjög nálægt því að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum 2020. Guðlaug hefur náð mjög góðum árangri í ár en hún endaði í 14. sæti á Evrópumeistaramótinu í þríþraut sem fram fór í Weert í Hollandi og náði sínum besta árangi í heimsbikarkeppninni þegar hún endaði í 15. sæti í Miyazaki í Japan.

Einnig varð hún fyrst Íslendinga til að klára keppni í heimsúrvalsseríunni í þríþraut (WTS) en hún endaði í 26. sæti í keppni sem fram fór í Montreal í Kanada. Guðlaug hefur líka keppt í stigakeppnum á vegum Evrópska þríþrautarsambandsins með góðum árangri en hún komst meðal annars á verðlaunapall í sprettþraut í Malmö í Svíþjóð þar sem hún endaði í 3. sæti. Þá náði hún 2. sæti í Afríkubikarmóti sem fram fór í Dahkla í Marokkó í nóvember.

Sigurður Örn Ragnarsson

Sigurður Örn Ragnarsson (28 ára úr Breiðabliki) er þríþrautarmaður ársins 2. árið í röð. Hann keppti í flokki atvinnumanna í Ironman-mótaröðinni í hálfum járnkarli og náði bestum árangri Íslendings frá upphafi í þeirri mótaröð þegar hann náði 8. sæti í Finnlandi. Sigurður varð Íslandsmeistari í ofursprettþraut og í ólympískri þríþraut og bikarmeistari Þríþrautarsambandsins. Sigurður setti brautarmet í ofursprettþraut og sprettþraut auk þess að vinna öll bikarmót Þríþrautarsambandsins.

Sigurður Örn Ragnarsson.
Sigurður Örn Ragnarsson. Ljósmynd/Þríþrautasamband Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert