Sundkappinn Anton Sveinn McKee hafnaði í öðru sæti í 100 metra bringusundi á 2020 Tyr Pro Swim Series-mótinu sem fram fór í Knoxville í Bandaríkjunum í gær. Anton synti á tímanum 1:00,65 sem skilaði honum silfurverðlaunum í greininni.
Í dag keppir íslenski sundkappinn í 200 metra bringusundi en margir af sterkustu sundmönnum Bandaríkjanna taka þátt í mótinu. Anton verður í eldlínunni hér heima á Íslandi um næstu helgi þegar hann keppir á Reykjavíkurleikunum.