Spenna í mörgum greinum á Meistaramótinu í frjálsíþróttum

Hafdís Sigurðardóttir gæti unnið bæði 60 metra hlaup og langstökk …
Hafdís Sigurðardóttir gæti unnið bæði 60 metra hlaup og langstökk á mótinu. AFP

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss fer fram í Kaplakrika um helgina og hefst í fyrramálið klukkan 11 á riðlakeppni í 60 metra hlaupi. Flest fremsta frjálsíþróttafólk landsins verður samankomið á mótinu og mun keppa um 24 Íslandsmeistaratitla í einstaklingsgreinum.

Mótinu lýkur um klukkan 16 á sunnudag með 4×200 metra boðhlaupi þar sem spennan er yfirleitt mjög mikil. Alls eru 150 keppendur skráðir til keppni frá 12 félögum.

Í 60 metra hlaupi kvenna vantar Íslandsmethafana tvo, Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur og Tiönu Ósk Whitworth. Þrátt fyrir það má búast við sterku og spennandi hlaupi þar sem nokkrar stelpur eiga vel undir átta sekúndum.

Bestan tíma keppenda á Hafdís Sigurðardóttir, UFA, 7,55 sekúndur. Hún á hefur einnig hlaupið hraðast í ár, eða á 7,78 sekúndum. Hún mun hins vegar frá harða samkeppni og til þess að eiga möguleika á Íslandsmeistaratitli þarf að eiga gott hlaup.

Andrea Torfadóttir, ÍR, sem á best 7,69 sekúndur, Birna Kristín Kristjánsdóttir, Breiðabliki, 7,76 sekúndur og Agnes Kristjánsdóttir, ÍR, 7,85 sekúndur eru allar líklegar til þess að berjast um gullið.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir keppir á ný eftir barneignarfrí.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir keppir á ný eftir barneignarfrí. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH, er einnig mætt aftur á brautina eftir tveggja ára fjarveru vegna barneigna og verður hún á meðal keppenda í 60 metra hlaupi og gæti blandað sér í baráttuna um gullið. Hún á best 7,72 sekúndur.

Í 60 metra hlaupi karla mun Juan Ramon Borges Bosque, Breiðabliki, freista þess að verja Íslandsmeistaratitil sinn. Hann átti flott tímabil í fyrra þar sem hann bætti sig og hljóp á 7,03 sekúndum og varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Í ár hefur hann hlaupið á 7,17 sekúndum og þarf því að hitta á gott hlaup til þess að eiga möguleika á verðlaunum.

Ari Bragi Kárason er sigurstranglegur í 60 m hlaupi karla.
Ari Bragi Kárason er sigurstranglegur í 60 m hlaupi karla. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á móti honum keppa tveir sem hafa hlaupið á skemmri tíma en sjö sekúndum. Það eru Ari Bragi Kárason, FH, sem á 6,92 sekúndur og Dagur Andri Einarsson, ÍR, sem á 6,99 sekúndur. Ari Bragi á því bestan árangur keppenda og hefur einnig hlaupið hraðast í ár, 7,01 sekúnda. Hann verður því að teljast afar líklegur til þess að hreppa gullið í ár.

Mótið hefst á riðlakeppni í 60 metra hlaupi kvenna klukkan 11:00 á laugardeginum og í karlaflokki klukkan 11:30. Úrslitin eru svo sama dag klukkan 14:00 í kvennaflokki og 14:10 í karlaflokki.

Hinn ungi Kristján Viggó Sigfinnsson er afar efnilegur hástökkvari.
Hinn ungi Kristján Viggó Sigfinnsson er afar efnilegur hástökkvari. mbl.is/Skapti Hallgrímsson


Sögulegt hástökk?

Í hástökki karla keppir einnig efnilegasti frjálsíþróttamaður Íslands um þessar mundir, Kristján Viggó Sigfinnsson úr Ármanni. Kristján bætti á dögunum 23 ára gamalt aldursflokkamet pilta 16-17 ára í hástökki þegar hann stökk yfir 2,13 metra. Hann á öll aldursflokkametin í hástökki bæði innanhúss og utanhúss upp að sínum aldursflokki sem eru piltar 16-17 ára, það eru alls tíu met.

Síðastliðið sumar varð hann Norðurlandameistari 19 ára og yngri í hástökki og varð annar á NM fullorðinna fyrr á tímabilinu. Það verður að teljast ansi líklegt að Kristján Viggó verði Íslandsmeistari í ár en það verður spennandi að sjá hversu hátt hann mun stökkva og hvort hann bæti aldursflokkamet sitt enn frekar.

Hin fjölhæfa María Rún Gunnlaugsdóttir er líkleg til afreka.
Hin fjölhæfa María Rún Gunnlaugsdóttir er líkleg til afreka. mbl.is/Árni Sæberg

Í kvennakeppninni mun María Rún Gunnlaugsdóttir, FH, freista þess að verða Íslandsmeistari í hástökki innanhúss þriðja árið í röð. Síðust til þess að skáka Maríu á þessu móti var Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, UMSS. Hún varð Íslandsmeistari 2017 og er nú að keppa á MÍ innanhúss í fyrsta skipti síðan þá.

Í ár hefur Eva María Baldursdóttir, HSK/Selfoss, hins vegar stokkið hæst og því gæti hún hreppt gullið. Til þess að eiga möguleika á titli í ár má búast við að stökkva þurfi töluvert yfir 1,70 metra en alls hafa sex stelpur gert það og því má búast við spennandi keppni.

Hástökk kvenna hefst klukkan 12:00 á laugardaginn og hástökk karla klukkan 13:30 á sunnudaginn.

Margfaldir Íslandsmeistarar í langstökki

Ein sterkasta greinin á mótinu í ár er langstökk kvenna. Þar mun Íslandsmethafinn Hafdís Sigurðardóttir, UFA, keppa. Hafdís hefur verið fremsti langstökkvari Íslands síðustu ár og er einnig með þeim bestu í Evrópu. Hún hefur verið á meðal keppenda á EM og situr nú í 27. sæti Evrópulistans með árangur upp á 6,37 metra.

Hafdís getur hins vegar ekki slakað á um helgina því Birna Kristín Kristjánsdóttir, Breiðabliki, hefur einnig stokkið yfir sex metra. Birna hefur stokkið lengst 6,12 metra utanhúss sem er stúlknamet 16-17 ára. Birna gæti því veitt Hafdísi góða samkeppni en til gamans má geta að fimmtán ára aldursmunur er á þeim tveimur.

Kristinn Torfason hefur unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í langstökki.
Kristinn Torfason hefur unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í langstökki. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Í karlaflokki er einnig reynslumikill keppnismaður. Það er langstökkvarinn Kristinn Torfason, FH, sem hefur verið einnig besti langstökkvari Íslands síðustu ár og er margfaldur Íslandsmeistari. Kristinn á best 7,77 metra og hefur stokkið 7,07 í ár. Búast má við spennandi keppni milli Kristins og fjölþrautakappans Ísaks Óla Traustasonar, UMSS. Ísak Óli hefur einungis stokkið fjórum sentimetrum styttra en Kristinn í ár, eða 7,03 metra. Besti árangur Ísaks Óla er 7,13 metrar.

Langstökkið fer fram á sunnudeginum og hefst forkeppnin klukkan 10 hjá körlunum og 11 hjá konunum. Úrslitin í karlaflokki fara fram 12:45 og í kvennaflokki 14:10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert