Frjálsíþróttasamband Íslands greinir frá því í dag að tillögum um þjóðarleikvang hafi verið skilað til Mennta-og menningarmálaráðuneytisins.
Starfshópur um þjóðarleikvang fyrir frjálsíþróttir skilaði inn tillögum sínum og greinargerð en í starfshópnum sátu fulltrúar frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, Reykjavíkurborg og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auk fulltrúa ráðuneytisins.
„Niðurstaða hópsins var ef að þjóðarleikvangur í knattspyrnu verður áfram á Laugardalsvelli þá sé framtíð best borgið á nýjum leikvangi fyrir norðan Suðurlandsbraut, austan frjálsíþróttahallar við Engjaveg. Mannvirki sem mun tengjast núverandi frjálsíþróttahöll, öðrum íþróttamannvirkjum sem og öðrum opnum svæðum í Laugardal,“ segir í færslu á vef Frjálsíþróttasambandsins.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra skipaði starfshópinn síðasta vetur og var honum meðal annars falið að afla upplýsinga um þarfir fyrir mannvirki til lengri tíma, greina mögulega nýtingu eldri mannvirkja eða þörf á nýjum, og skoða kostnaðarskiptingu slíkra verkefna, bæði hvað varðar mögulega uppbyggingu, rekstur og nýtingu segir jafnframt á vef FRÍ.