Tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins

Sara Björk Gunnarsdóttir er handhafi titilsins en hún var kjörin …
Sara Björk Gunnarsdóttir er handhafi titilsins en hún var kjörin íþróttamaður ársins 2020, í annað skipti. Ljósmynd/Bragi Valgeirsson

Sex karlar og fjórar konur koma til greina í kjörinu á íþróttamanni ársins 2021 hjá Samtökum íþróttafréttamanna. Atkvæðin hafa verið talin og ljóst hvaða íþróttafólk hafnaði í efstu tíu sætunum. Úrslitin verða opinberuð 29. desember.

Um leið kusu samtökin þjálfara ársins 2021 og lið ársins 2021 en nú er jafnframt skýrt frá því hverjir fengu flest atkvæði í þeim kosningum, þrír efstu í hvoru kjöri og birt í stafrófsröð.

Kjörið fer nú fram í 66. skipti en samtökin hafa kosið íþróttamann ársins samfleytt frá árinu 1956.

Þau tíu sem höfnuðu í efstu sætunum í kjörinu eru í stafrófsröð:

Aron Pálmarsson handknattleiksmaður hjá Aalborg í Danmörku varð Evrópumeistari með Barcelona og fór tvisvar í úrslit Meistaradeildar með liðinu á tímabilinu. Hann varð jafnframt spænskur meistari og bikarmeistari með liðinu og var fyrirliði landsliðsins þegar það tryggði sér sæti á EM 2022.

Bjarki Már Elísson handknattleiksmaður hjá Lemgo í Þýskalandi. Hann varð þriðji markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar 2020-21 og þýskur bikarmeistari með Lemgo. Hann var í lykilhlutverki með landsliðinu á HM í Egyptalandi og markahæsti leikmaður þess.

Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyftingamaður úr Ármanni. Hann varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í þungavigt en gerði ógilt í hinum greinunum á HM og komst því ekki á blað í samanlagðri keppni á mótinu.

Kári Árnason knattspyrnumaður úr Víkingi í Reykjavík. Hann var burðarás í Víkingsliðinu sem varð Íslandsmeistari og bikarmeistari og þá lauk hann farsælum ferli með íslenska landsliðinu með sínum 90. landsleik í september.

Kolbrún Þöll Þorradóttir hópfimleikakona úr Stjörnunni. Hún var í lykilhlutverki í kvennalandsliðinu sem varð Evrópumeistari í hópfimleikum. Hún var valin í úrvalslið mótsins og framkvæmdi eitt erfiðasta stökk mótsins. Hún varð Íslands- og bikarmeistari með Stjörnunni.

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona úr ÍA varð Evrópumeistari í -84 kg flokki í klassískum kraftlyftingum, setti þrjú Evrópumet á mótinu og varð fyrst Íslendinga Evrópumeistari í samanlögðu. Hún fékk bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu.

Martin Hermannsson körfuknattleiksmaður hjá Valencia á Spáni. Hann komst í undanúrslitin um spænska meistaratitilinn með liðinu og lék með því í Euroleague, næststerkustu deild félagsliða í heimi. Hann var í stóru hlutverki í mikilvægum sigri landsliðsins á Hollendingum.

Ómar Ingi Magnússon handknattleiksmaður hjá Magdeburg í Þýskalandi. Hann varð markakóngur þýsku deildarinnar 2021 og er áfram meðal markahæstu manna deildarinnar í ósigrandi liði Magdeburg í vetur, ásamt því að eiga næstflestar stoðsendingar. Hann vann Evrópudeildina með liðinu og síðan heimsmeistaramót félagsliða þar sem Magdeburg vann Barcelona í úrslitaleik.

Rut Arnfjörð Jónsdóttir handknattleikskona hjá KA/Þór á Akureyri. Hún sneri heim eftir atvinnumennsku og fór fyrir liði KA/Þórs sem vann fjóra titla og varð Íslands- og bikarmeistari í fyrsta sinn í sögunni. Hún er fyrirliði landsliðsins sem fór vel af stað í undankeppni EM.

Sveindís Jane Jónsdóttir knattspyrnukona hjá Kristianstad í Svíþjóð. Hún er í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu og skoraði þrjú mörk í undankeppni HM í haust. Hún hóf atvinnumennskuna með Kristianstad sem varð í þriðja sæti í Svíþjóð og var önnur tveggja markahæstu leikmanna liðsins.

Þjálfararnir þrír í stafrófsröð

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings í knattspyrnu karla.

Vésteinn Hafsteinsson sem þjálfaði gull- og silfurverðlaunahafa í kringlukasti karla á Ólympíuleikunum í Tókýó.

Þórir Hergeirsson þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta sem varð heimsmeistari og Evrópumeistari og fékk bronsverðlaun á Ólympíuleikunum.

Liðin þrjú í stafrófsröð

Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum sem varð Evrópumeistari.

KA/Þór sem varð fjórfaldur meistari í handknattleik kvenna tímabilið 2020-21.

Víkingur úr Reykjavík sem varð Íslands- og bikarmeistari karla í fótbolta 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert