Sigurkossinn sem allir biðu eftir

Travis Kelce og Taylor Swift kyssast eftir sigur Kansas City …
Travis Kelce og Taylor Swift kyssast eftir sigur Kansas City Chiefs. AFP/Ezra Shaw

Travis Kelce var í stóru hlutverki er Kansas City Chiefs urðu NFL-meistarar annað árið í röð eftir sigur á San Fransisco 49ers, 25:22, í framlengdum leik í nótt. 

Kelce og kærasta hans, ofurstjarnan Taylor Swift, áttu einlægt augnablik eftir leik og kysstust innilega. 

Swift flaug hálfan hnöttinn til að styðja við bakið á kærasta sínum en í síðustu viku hélt hún fjóra tónleika í Japan. Þá hóf hún vikuna á því að vinna tvenn Grammy-verðlaun. 

Áhugi fyrir leiknum jókst einungis eftir að samband Kelce og Swift var opinberað, og ekki var hann lítill áður. 

Myndavélin snérist stanslaust að Swift í nótt sem sýndi ýmis tilbrigði. Myndskeið af augnablikinu einlæga má sjá hér að neðan. 

Þá var Taylor Swift valin manneskja ársins hjá bandaríska tímaritinu Time í lok ársins 2023. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert