Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leikið 27 holur á Prasco Charity Championship-mótinu í golfi. Mótið er hluti af Symetra-mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Bandaríkjunum. Ólafía er á parinu og væntanlega á leiðinni í gegnum niðurskurðinn.
Ólafía lék fyrri hringinn seint í gær á pari. Hún fékk tvo fugla og tvo skolla og stöðugt golf hennar hélt áfram í dag. Eftir fyrri níu holurnar á öðrum hring er hún enn á parinu; með einn fugl og einn skolla.
Eins og staðan er núna fara allir kylfingar sem eru á einu höggi yfir pari og á betra skori í gegnum niðurskurðinn og leika þriðja og síðasta hringinn. Partty Tavatanakit frá Taílandi er efst á átta höggum undir pari og Lori Adams frá Bandaríkjunum er á sjö höggum undir pari.