Annar sigurinn á tímabilinu

Ragnhildur Kristinsdóttir gerir það gott vestanhafs.
Ragnhildur Kristinsdóttir gerir það gott vestanhafs. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er komin í hóp þeirra íslensku kylfinga sem sigrað hafa oftar en einu sinni á háskólamótum í Bandaríkjunum, NCAA. Ragnhildur fagnaði sigri á móti í Arden í Norður-Karólínuríki á dögunum.

Ragnhildur lék holurnar 54 á samtals fimm höggum yfir pari vallarins.

Ragnhildur keppir fyrir Eastern Kentucky-háskólann og hefur unnið tvö mót á þessu keppnistímabili en hún stóð einnig uppi sem sigurvegari í Missouri í lok september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert