Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, lék á sjö höggum yfir pari á þriðja og síðasta hring á móti í Bangkok í Taílandi á Evrópumótaröð kvenna í nótt.
Guðrún lék fyrsta hring mótsins á tveimur yfir pari en þann næsta á einu undir pari. Þriðji hringurinn var því alls ekki jafn góður og hinir tveir.
Guðrún lýkur því keppni í 55. sæti mótsins á átta höggum yfir pari, líkt og hin finnska Emilia Tukiainen og hin sænska Caroline Hedwall. Það var Manon De Roey frá Belgíu sem vann mótið hún lék á samtals 13 höggum undir pari.