Valur gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann ÍBV, 31:28, í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Eyjamenn voru yfir stærstan hluta fyrri hálfleiks og komust m.a í 13:9. Valsmenn voru hins vegar sterkir undir lok hálfleiksins og var staðan eftir hann 14:13.
Seinni hálfleikur var jafn og spennandi þangað til í blálokin er Valsmenn sigu fram úr og tryggðu sér sigurinn. Eyjamaðurinn Sigurbergur Sveinsson var markahæstur í leiknum með átta mörk, en Magnús Óli Magnússon skoraði sjö fyrir Val og Sveinn Aron Sveinsson gerði sex.
Með sigrinum fóru Valsmenn upp fyrir Hauka og upp í 4. sæti deildarinnar, en Eyjamönnum mistókst að setja meiri pressu á topplið FH og eru enn í öðru sæti, fimm stigum á eftir Hafnfirðingum.
ÍBV | 28:31 | Valur | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Magnús Óli Magnússon (Valur) skoraði mark Sjö mörk! Lykilmaður í þessum sigri Valsmanna! | ||||
Augnablik — sæki gögn... |