Serbía og Króatía tryggðu sér í kvöld sæti í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í handbolta sem fram fer í Danmörku og Þýskalandi á næsta ári. Sætin voru þau síðustu sem í boði voru fyrir Evrópuþjóðir á mótinu.
Króatía komst áfram þrátt fyrir 32:31-tap fyrir Svartfjallalandi í kvöld. Króatía vann fyrri leikinn 32:19 og einvígið 63:51 samanlagt. Milos Vujovic skoraði níu mörk fyrir Svartfjallaland og Zlatko Horvat gerði sjö fyrir Króatíu.
Portúgal og Serbía gerðu 25:25-jafntefli í Portúgal. Serbía vann fyrri leikinn 28:21 og fer áfram með 53:36-sigri samanlagt. Pedro Portela skoraði fimm mörk fyrir Portúgal og Bogdan Radivojevic gerði sex fyrir Serbíu.