Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 2 af mörkum Kiel þegar liðið sigraði Leipzig 31:23 í 16-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik í kvöld.
Gísli Þorgeir gekk í raðir Kiel frá FH í sumar og hefur fengið nokkrar spilmínútur í nokkrum leikjum með þýska stórliðinu á tímabilinu.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar höfðu tögl og hagldir allan tímann en staðan eftir fyrri hálfleikinn var 15:7. Sænski landsliðsmaðurinn Lukas Nilsson var markahæstur í liði Kiel með 8 mörk.