Stefán Rafn Sigurmannsson átti góðan leik fyrir Pick Szeged í 36:25-útisigri á Csurgói í ungversku A-deildinni í handbolta í dag. Stefán skoraði sex mörk og var á meðal markahæstu manna Pick Szeged.
Pick Szeged er búið að vera á ótrúlegu flugi í ungversku deildinni og er liðið búið að vinna alla 16 leiki sína til þessa. Szeged er með tólf stiga forskot á stórliðið Veszprém, en Veszprém á þó fjóra leiki til góða.
Szeged er svo í fínum málum í Meistaradeildinni og er liðið búið að vinna sjö af tíu leikjum sínum til þessa í sterkum B-riðli.