Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og samherjar þeirra í þýska liðinu Rhein Neckar Löwen máttu þola 24:27-tap á útivelli fyrir HC Meshkov Brest frá Hvíta-Rússlandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Meshkov Brest var yfir stærstan hluta leiks og staðan í hálfleik var 15:12. Guðjón Valur var markahæstur hjá Löwen ásamt Andy Schmid með fimm mörk og Alexander skoraði þrjú mörk.
Eftir 12 umferðir er Löwen í fimmta sæti A-riðilsins með 12 stig og Meshkov Brest með sjö stig í sjöunda sæti.