Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar hans í Pick Szeged þurftu að sætta sig við silfur í baráttunni um ungverska meistaratitilinn í handbolta eftir 27:27-jafntefli á heimavelli gegn Veszprém í dag.
Veszprém vann fyrri leikinn á sínum heimavelli, 35:24, og einvígið samanlagt 62:51. Stefán Rafn skoraði tvö mörk fyrir Szeged í dag.
Pick Szeged varð deildar- og bikarmeistari fyrr á leiktíðinni og er því tvöfaldur meistari. Stefán og félagar þurftu hins vegar að horfa á eftir stærsta bikarnum í dag.