Magdeburg, toppliðið í þýska handboltanum í karlaflokki, getur ekki spilað þessa dagana eftir að kórónuveirusmit komu upp í herbúðum þess.
Leik liðsins við N-Lübbecke sem fram átti að fara á sunnudaginn var frestað af þessum sökum og einnig leik gegn Sävehof í Evrópudeildinni sem fram átti að fara í Svíþjóð í kvöld.
Landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson leika með Magdeburg. Ekki er ljóst hvenær þessir frestuðu leikir verða spilaðir.