Snýr aftur til Vals frá Svíþjóð

Lilja Ágústsdóttir í leik með Val á síðasta ári.
Lilja Ágústsdóttir í leik með Val á síðasta ári. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Handknattleikskonan Lilja Ágústsdóttir hefur snúið aftur í Val frá Lugi í Svíþjóð. Hún gekk í raðir Lugi frá Val að láni í janúar.

Lilju stóð til boða að vera í tvö ár til viðbótar hjá Lugi en hún ákvað frekar að koma heim og klára nám, áður en stefnan er sett aftur út.

„Það var frábær reynsla að fara til Lugi þó þetta hafi verið bara hálft tímabil. Ég vil koma heim og klára námið og stefni svo á að fara aftur út í atvinnumennsku,” er haft eftir henni í tilkynningu Vals.

Ásdís Þóra Ágústdóttir, systir Lilju, verður áfram með Lugi en hún er að snúa aftur eftir erfið meiðsli.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert