Lék vel fyrir toppliðið

Orri Freyr Þorkelsson átti flottan leik fyrir topplið Sporting.
Orri Freyr Þorkelsson átti flottan leik fyrir topplið Sporting. Ljósmynd/Sporting

Sporting vann stórsigur á Braga, 37:23, á heimavelli í efstu deild portúgalska handboltans í dag.

Orri Freyr Þorkelsson átti flottan leik fyrir Sporting og skoraði sex mörk. Liðið er í toppsætinu með 43 stig, tveimur meira en Porto.

Stiven Tobar Valencia lék ekki með Benfica sem tapaði fyrir Porto, 34:29, á útivelli. Stiven er að glíma við meiðsli í öxl.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert