Áfall fyrir FH – Aron ekki með

Aron Pálmarsson verður ekki með í kvöld.
Aron Pálmarsson verður ekki með í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Aron Pálmarsson leikur ekki með FH gegn ÍBV í oddaleik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta í Kaplakrika. Verður leikurinn flautaður á klukkan 19.40.

Landsliðsfyrirliðinn varð fyrir meiðslum í fingri í síðasta leik og hefur ekki jafnað sig í tæka tíð. Er um mikið áfall fyrir FH að ræða.

Sigurvegarinn í kvöld mætir annað hvort Val eða Aftureldingu í úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert