„Orð geta ekki lýst tilfinningunni eftir alla þá pressu sem hefur verið á okkur gestgjöfunum,“ sagði Nikola Karabatic, leikmaður franska landsliðsins í handknattleik, sem í kvöld varði heimsmeistaratitil sinn eftir öruggan sigur á Norðmönnum í úrslitaleik.
„Okkar frábæru stuðningsmenn hjálpuðu okkur að láta drauminn rætast,“ sagði Karabatic en rúmlega 15 þúsund áhorfendur voru á úrslitaleiknum og flestir voru þeir á bandi Frakkanna.
Karabatic var í mótslok útnefndur mikilvægasti leikmaður mótsins en þessi 32 ára gamli frábæri handknattleiksmaður fagnaði í kvöld sínum fjórða heimsmeistaratitli.