Körfuknattleiksmaðurinn Björn Kristjánsson hefur endurnýjað samning sinn við Íslandsmeistara KR um tvö ár en hann gekk til liðs við félagið á nýjan leik fyrir síðustu leiktíð.
Björn, sem hefur leikið með liðum á borð við Stjörnuna, Njarðvík og Breiðablik, skoraði að meðaltali 10,4 stig á síðustu leiktíð er KR varð Íslandsmeistari fimmta árið í röð.
Böðvar Guðjónsson, varaformaður körfuknattleiksdeildar KR, staðfesti þetta á blaðamannafundi í Frostaskjóli í dag en þar var Emil Barja einnig kynntur til leiks sem nýr leikmaður KR. Einnig var staðfest að Hjalti Þór Vilhjálmsson verði aðstoðarþjálfari Inga Þórs Steinþórssonar.