Martin Hermannsson átti frábæran leik fyrir Alba Berlín í dag þegar liðið vann 92:74-sigur gegn Ulm í þýsku A-deildinni í körfuknattleik. Martin var stigahæstur í liði Alba Berlín með 17 stig og þá tók Íslendingurinn sex fráköst. Martin gaf tvær stoðsendingar og stal boltanum í tvígang.
Alba Berlín vann fyrsta leikhlutann með 7 stigum, 24:17, og þriðja leikhlutann með 9 stigum, 24:15, og það skóp sigur liðsins í dag. Martin spilaði í tæpar 32 mínútur í dag en Alba Berlín er á toppi deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar, líkt og Bayern og Bonn.