Giannis Antetokounmpo, einn besti leikmaðurinn í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum, verður með gríska landsliðinu á HM í Kína í haust.
Antetokounmpo var ekki með gríska landsliðinu á EM árið 2017 né í leikjunum í undankeppni HM, en hann lék síðast leiki með gríska liðinu í forkeppni Ólympíuleikanna 2016.
Hann hefur leikið á tveimur stórmótum; EM 2015 og HM 2014, þar sem hann lék alls 14 leiki og skoraði 8 stig að meðaltali í leik.
Antetokounmpo hefur alls leikið 38 landsleiki fyrir Grikki, en hann hefur leikið með Milwaukee Bucks síðan 2013.